Leiðbeiningar Lunora L100

Leiðbeiningar - Lunora L100 Bluetooth ilmtæki

Í pakkanum

- Lunora L100 ilmtæki

- Ilmolíuflaska (120ml)

- Flöskuhettu

- Hleðslustykki (12V 2A)

- Úðunarhaus (atomizing core)

- Leiðbeiningar

Uppsetning

  1. Lyftu úðunarhausnum af tækinu
  2. Skrúfaðu flöskuna af
  3. Fylltu flöskuna af ilmolíu
  4. Settu úðunarhausinn aftur á tækið

Mikilvægt: Haltu tækinu alltaf upprétt eftir uppsetningu. Ef tækið hallar eða liggur flatt getur olía lekið og skemmt rafmagnshluti.

Takkarnir á tækinu

Kveikja/slökkva: Stuttur þrýstingur á kveikjutakkann kveikir eða slekkur á tækinu.

Ilmstyrkur (Grade): Stuttur þrýstingur skiptir á milli styrks 1, 2, 3, 4, 5 og sérstillingar (Custom).

Tímastilling (Timer): Stuttur þrýstingur skiptir á milli 1 klst, 2 klst, 4 klst, 8 klst, Smart og 24 klst. Sjálfgefin stilling er 24 klst.

Umhverfisljós: Stuttur þrýstingur kveikir eða slekkur á ljósinu. Ljósið virkar hvort sem tækið er kveikt eða slökkt, svo hægt er að nota það sem næturljós.

Endurstilla (Factory reset): Haltu kveikjutakkanum inni í 5 sekúndur til að endurstilla allar stillingar. Lykilorðið fer aftur í 8888.

Bluetooth appið

Hvar finn ég appið?

Leitaðu að "Lunora scent diffuser" í Google Play eða App Store.

Athugið: Kveiktu á Bluetooth áður en þú opnar appið.

Hvernig tengi ég tækið?

  1. Opnaðu Lunora appið og veldu Bluetooth
  2. Veldu tækið þitt af listanum
  3. Sláðu inn sjálfgefna lykilorðið 8888 og ýttu á Login

Hvað get ég gert í appinu?

Breytt nafni tækisins: Á "Device Control" síðunni getur þú gefið tækinu nafn og merkimiða, til dæmis "Stofa" eða "Skrifstofa".

Sett upp áætlanir: Ýttu á "+" til að bæta við nýrri áætlun. Þú getur búið til margar áætlanir fyrir mismunandi tíma dagsins. Til að eyða áætlun, strjúktu til vinstri.

Stillt vinnutíma: Á "Working period setting" síðunni velur þú hvenær tækið á að byrja og hætta. Veldu vikudagana sem áætlunin á við.

Stillt ilmstyrk: Ýttu á "+" eða "-" til að breyta styrk (1-5). Hakaðu í "Custom" til að stilla úðunartíma og hlé handvirkt. Við mælum með að byrja fyrsta daginn á styrk 1 og auka síðan ef þarf.

Kveikt/slökkt á áætlunum: Notaðu rofann við hverja áætlun til að virkja eða slökkva á henni.

Kvörðun (Calibrate): Eftir að tækið hefur verið í notkun í að minnsta kosti 10 daga getur þú kvarðuð olíunotkunina. Mældu hversu mikil olía er eftir í flöskunni, sláðu inn magnið í appinu og ýttu á "Confirm". Appið reiknar þá sjálfkrafa út daglega notkun og hversu marga daga olían endist.

Breytt lykilorði: Farðu í "About" flipann á "Device Control" síðunni og ýttu á "Password Change". Sláðu inn nýtt 4 stafa lykilorð.

Mundu alltaf að ýta á "Save" efst í hægra horninu eftir hverja breytingu.

Ilmstyrkur og olíunotkun

Styrkur Úðun (sek) Hlé (sek) Notkun (ml/klst) Rafhlöðuending
1 (léttastur) 5 240 0,05 um 200 klst
2 15 200 0,17 um 80 klst
3 20 160 0,27 um 50 klst
4 25 100 0,49 um 29 klst
5 (sterkastur) 25 60 0,72 um 20 klst
Sérstilling 5-35 60-300 Mismunandi Mismunandi

Athugið: Þessar tölur eru til viðmiðunar. Notkun getur verið mismunandi eftir seigju ilmolíunnar. Fyrir bestu niðurstöðu er mælt með olíum undir 30 mPa.s í seigju og umhverfishita um 25°C.

Hleðsla og rafhlöðustaða

- Grænt ljós: Rafhlöðustaða yfir 20%

- Rautt ljós: Rafhlöðustaða undir 20%

- Grænt ljós stöðugt: Fullhlaðið (100%)

- Ljós blikkar við hleðslu

Hvernig hreinsa ég tækið?

Hreinsa þarf tækið þegar:

- Þú ætlar að skipta um ilmolíu

- Úðunin verður veik

- Á 2-3 mánað fresti eða þegar skipt er um ilmolíu

Svona gerirðu:

  1. Hreinsaðu flöskuna með vatni og þurrka hana vel, hella 5-10 ml af Isopropanol í flöskuna
  2. Settu flöskuna í tækið og kveiktu á því á hæsta styrk
  3. Láttu tækið keyra í 5-10 mínútur
  4. Slökktu á tækinu
  5. Helltu Ispropanol úr flöskunni, þurrkaðu vel flöskuna að innan
  6. Eftir hreinsunina má setja ilmolíu aftur í flöskuna

 

Tækniupplýsingar

Gerð A326
Stærð 117,5 x 117,5 x 342 mm
Flaska 120 ml
Inntak 12V 2A
Orkunotkun 4W
Þekja Allt að 100 m²
Þyngd 1,35 kg
Rafhlaða Li-ion 2200 mAh
Efni Ál (aluminum)
Tenging Bluetooth

Ef þú þarft frekari aðstoð, hafðu samband við okkur á lunora@lunora.is eða í síma 781-6645.