Nebulizer ilmtæki

Ný tækni í ilmtækjum, kaldúða ilmtæki

Lunora ilmtækin notar nebulizer-tækni til að dreifa ilmolíum í örsmáar nanó-agnir, án vatns og án hita. Upplifðu ilminn eins og hann var ætlaður.

Hvað er nebulizer ilmtæki?

Nebulizer (eða kaldúðunar) ilmtæki er tegund ilmgjafa sem brýtur niður ilmolíu í örsmáar agnir, niður í nanóstærð, með þrýstingi en án vatns eða hita. Úðinn sem berst út er því eingöngu ilmolía, sem dreifist hratt og jafnt um rýmið.

Þetta er grundvallarmunurinn á milli nebulizer og hefðbundinna ultrasonic diffusera sem blanda ilmolíu saman við vatn.

Hvernig virkar tækið?

1

Þrýstingur skapar strauminn

Loftdæla tækisins skapar þrýsting sem dregur ilmolíuna upp úr tankinum.

2

Tvöföld úðunaraðferð

Loft og ilmolía mætast og mynda saman mjög fíngerðar nanó-agnir.

3

Enginn hiti og ekkert vatn

Ilmurinn berst beint út í rýmið. Enginn hiti, engin vatnsblöndun, sameindabygging olíunnar helst óbreytt.

4

Jöfn dreifing

Smæð agnanna gerir þeim kleift að dreifast víðar og lengur en úr hefðbundnum diffuserum.

Af hverju nebulizer?

🔥

Hitar ekki ilmolíuna

Hiti veldur niðurbroti á lífrænum efnasamböndum. Tækið nýtir háþróaða kaldúðunartækni sem viðheldur virkni og gæðasamsetningu ilmolíunnar án þess að skaða samsetningu hennar.

💧

Engin raki

Þar sem ekkert vatn fer í tækið þá helst raki herbergisins óbreyttur, engin bakteríumyndun eða mygla.

Þægileg viðhaldsfrí notkun

Engin þörf á að fylla upp á vatn daglega. Olíutankurinn endist lengi og tækið er auðvelt að þrífa, engin kalkmyndun eða mygluhætta.

📱

Bluetooth & tímaforritun

Stilltu styrk og tímasetningu beint í appi. Tækið getur t.d. sjálfkrafa kveikt á sér áður en þú kemur heim og slökkt á sér áður en þú ferð að sofa.

Nebulizer vs. aðrar gerðir ilmgjafa

Eiginleiki Nebulizer (Lunora) Ultrasonic diffuser Reed diffuser Kertaolíulampi
Notar vatn ✗ Nei ✓ Já ✗ Nei ✗ Nei
Notar hita ✗ Nei ✗ Nei ✗ Nei ✓ Já
100% hrein olíudreifing ✓ Já ✗ Þynnt ✗ Hæg ✗ Breytt
Dreifing á stórt rými ✓ 80–120 m² 20–40 m² 5–15 m² 10–20 m²
Rakaaukning ✗ Engin ✓ Já ✗ Engin ✗ Engin
Bluetooth-stýring ✓ Já Fáir ✗ Nei ✗ Nei
Aromatherapy-gildi ✓ Hámarksgildi Gott Takmarkað Skert

* Dreifingargeta fer eftir gerð tækis, ilmolíu og loftræstingu rýmis.

Algengar spurningar

Hvaða ilmolíur henta?

Ilmolíur sem eru hannaðar fyrir Nebulizer-Kaldúðunar tæki, t.d. ilmolíurnar sem fást hjá okkur. Olíurnar mega ekki vera of þykkar.

Hversu mikla olíu notar tækið?

Lunora-tækið notar um 0,05–0,5 ml á klukkustund eftir stillingum. Við lágmarksstillingu endist 100 ml olía í 2–4 mánuði. Tímaforritun í appinu hjálpar við að stýra notkun og einnig er hægt að stilla hversu lengi tækið úðar hverju sinni og með hversu miklu millibili. Gott er að byrja á lægstu stillingu.

Er tækið hávært?

Tækið er flokkað sem „Ultra-Quiet" og hljóðstyrkurinn er venjulega undir 35 dB, það heyrist ekkert í tækinu á milli þess sem það er að dreifa ilmolíunni. Hægt er að stilla í appinu hversu oft á klukkustund það dreifir, frá 5 sekúndum og upp í 5 mínútna millibili.

Hvernig þríf ég tækið?

Best er að þrífa flöskuna þegar skipt er um ilmolíu eða á tveggja til þriggja mánaða fresti. Helltu afgangsolíunni aftur í flöskuna sína, skola vel flöskuna sem fer í tækið og þurrkaðu hana. Helltu síðan 5–10 ml isopropanol í tómu flöskuna sem fer í tækið og láttu tækið ganga í 10–15 mínútur nálægt glugga. Þurrkaðu af stútnum og flöskuna og settu síðan ilmolíuna aftur í.

Hentar þetta fyrir heimili eða eingöngu atvinnunotkun?

Bæði! Lunora er hönnuð fyrir kröfuharðar aðstæður, hótel, spa, verslanir og skrifstofur, en hentar jafnframt fullkomlega á heimili. Bluetooth-appið gerir heimanotkun sérstaklega þægilega.

Er hægt að nota tækið á meðan fólk og gæludýr er í rýminu?

Ilmolíurnar okkar eru allar án glýkóls, súlfata, parabens, gervilitarefna, jarðefnavara og annarra aukaefna. Allir ilmir uppfylla ströngustu kröfur IFRA (International Fragrance Association).

Hvar get ég skoðað ilmtækið og ilmolíurnar?

Verslunin Daría & Herrar í verslunarmiðstöðinni Firðinum, Hafnarfirði, er með vörurnar til sýnis og sölu. Þar geturðu skoðað tækin í eigin persónu og fundið þinn uppáhaldsilm.