Persónuverndarstefna
Privacy Policy
Vafrakökur Lunora.is notar vafrakökur til að tryggja bestu upplifun notenda og eðlilega virkni. Vafrakökur eru notaðar til að bæta virkni, til greiningar og til að beina auglýsingum að markhópum.
Persónuverndarstefna Okkur er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna. Markmið okkar er að viðskiptavinir séu upplýstir um hvernig lunora.is safnar og vinnur persónuupplýsingar í samræmi við GDPR.
Söfnun persónuupplýsinga Þegar þú heimsækir vefsíðuna söfnum við sjálfkrafa ákveðnum upplýsingum um tækið þitt, þar á meðal upplýsingum um vafrann þinn, IP-tölu og tímabelti.
Þegar þú vafrar um síðuna söfnum við upplýsingum um vörur sem þú skoðar, hvaða vefsíður vísuðu þér á síðuna okkar og upplýsingar um hegðun þína á síðunni.
Deiling gagna með þriðja aðilum Við deilum gögnum með eftirfarandi þjónustuaðilum til að reka verslunina:
- Shopify – netverslunarkerfið okkar
- Dropp – sendingaþjónusta
- Meta (Facebook/Instagram) – auglýsingakerfi
- Google Analytics – vefgreiningar
Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar til þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Réttindi þín samkvæmt GDPR Þú átt rétt á að:
- Fá aðgang að persónuupplýsingum þínum
- Láta leiðrétta rangar upplýsingar
- Láta eyða upplýsingum þínum
- Andmæla vinnslu gagna
Til að nýta þér réttindi þín skaltu hafa samband á lunora@lunora.is
Viðbót vegna Lunora snjallforritsins
Söfnun gagna: Forritið safnar lágmarksupplýsingum:
- Tölvupóstfang: Til að stofna aðgang og vista stillingar
- Staðsetningargögn (Bluetooth): Apple og Android krefjast aðgangs að staðsetningu til Bluetooth tengingar. Við vistum ekki staðsetningu þína
- Tækisupplýsingar: Gerð síma og útgáfa stýrikerfis til að bæta upplifun
Eyðing gagna: Þú getur eytt aðgangi þínum í stillingum forritsins eða með því að senda póst á lunora@lunora.is. Við eyðum öllum persónugreinanlegum gögnum innan 30 daga.
Tengiliðaupplýsingar Lunora.is - Daria ehf Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður lunora@lunora.is